top of page

Persónuverndaryfirlýsing

Í persónuverndaryfirlýsingu þessari er verklagi Landsambands eldri borgarar (LEB) kt. 600989-4059 og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) kt. 670169-0499 hér eftir nefnd bjartlif.is, lýst varðandi þær upplýsingar sem vefsíðan safnar vegna fréttaefnis og markaðsstarfs á netinu. Einnig er hér að finna nánari lýsing hvernig vinnslu þeirra upplýsinga er háttað. Stærstur hluti upplýsinga sem fyrirtækið vinnur með eru persónulegar upplýsingar. Að sjálfsögðu er lagt á það áhersla að vinna með eins lítið af persónugreinalegum upplýsingum og mögulegt er án þess þó að skerða þjónustu sem viðskiptavinir og fylgjendur óska eftir.

 

Hvaða persónuupplýsingum safnar bjartlif.is um þig?
það fer eftir eðli samninga og annarra samskipta hvaða upplýsinga er aflað hverju sinni. Leitast er við að afla eingöngu persónuupplýsinga beint frá viðskiptavinum og öðrum fylgjendum.

bjartlif.is safnar, eftir því sem við á, eftirfarandi persónuupplýsingum:

  • Nafni

  • Netfangi

  • Símanúmeri

  • IP tölum
     

Það er stefna bjartlif.is að safna ekki persónuupplýsingum sem flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar eða persónuupplýsingar um börn yngri en 13 ára.

Tilgangur með öflun persónuupplýsinga er að:

  • Framkvæma og efna loforð um afhendingu á fríu efni.

  • Að halda utan um samskiptasögu og tryggja rekjanleika eftir því sem við á.

  • Stunda markaðssetningu og útbúa markaðsefni í afmörkuðum tilvikum.
     

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)

Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði www.bjartlif.is er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur bjartlif.is þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að bjartlif.is geti sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

Notkun bjartlif.is á vafrakökum

Með því að samþykkja skilmála LEB og ÍSÍ  (www.bjartlif.is) um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:
Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,

  • Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,

  • Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,

  • Að birta notendum auglýsingar

  • Að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið.

Bjartlif.is notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til að telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á bjartlif@isi.is 

Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu
bjartlif.is safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu

  • Á grundvelli veitts samþykkis

  • Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins

  • Til að uppfylla lagaskyldu

Lögmætir hagsmunir fela í sér aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að stýra markaðsstafi og námskeiðshaldi og fela í sér nauðsyn til að safna og vinna persónuupplýsingar, s.s. að uppfylla tilgang starfseminnar samkvæmt samþykktum þess, að sinna viðskiptasambandi við viðskiptavini, að hafa skipulag á framkvæmd starfseminnar, veitingu aðgangs að viðeigandi upplýsingakerfum félagsins, fylgni við innri og ytri reglur, meðhöndlun beiðna, kvartana og krafna frá þriðju aðilum.

Miðlun persónuuplýsinga til þriðju aðila
Bjartlif.is selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar. Bjartlif.is miðlar  einungis persónuupplýsingum til þriðja aðila þar sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu bjartlif.is til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um að hýsa upplýsinga- og símkerfi. Teljist aðili sem bjartlif.is miðar persónuupplýsingum til vinnsluaðila, gerir bjartlif.is vinnslusamning við viðkomandi aðila sem fær persónuupplýsingar þínar. Samningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum þínum örugggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Bjartlif.is deilir einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni starfseminnar, eins og við innheimtu á vanskilakröfum.

Persónuverndarstefna bjartlif.is nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðja aðila en hún hefur enga stjórn á né ber ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þar á meðal vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað  á okkur, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.

Geymslutími persónuupplýsinga
Geymslutími persónugreinanlegra gagna hjá bjartlif.is er breytilegur og fer eftir eðli upplýsinga hverju sinni. Bjartlif.is leggur þó áherslu á að geyma upplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er, nema lögmæt ástæða sé til annars. Bjartlif.is geymir því persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan og svo lengi sem upplýsingarnar eru nauðsynlegar fyrir starfsemina til að það geti sinnt hlutverki sínu, eða á meðan slíkt er skylt samkvæmt lögum. Persónuupplýsingar sem koma fram á reikningum eru geymd í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum. Endurskoðun á geymslu persónuuuplýsinga fer fram einu sinni á ári. Ef kemur í ljós við endurskoðun á geymslu persónuupplýsinga að bjartlif.is þarf ekki vegna vinnslu eða lagalegra skyldu að geyma persónuupplýsingar þínar mun bjartlif.is hætta vinnslu og geymslu persónuupplýsinga frá þeim tíma.

Réttindi þín
Það er réttur þinn að fá:

  • Upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar bjartlif.is hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig.

  • Aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila.

Einnig er það þinn réttur að:

  • Persónuupplýsngar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til.

  • Bjartlif.is eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær.

  • Koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar.

  • Afturkalla samþykki þitt, hvenær sem er, um að bjartlif.is megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.

  • Upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðuð á sjálfvirkri ákvörðunartöku.

  • Leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi sjáir þú ástæðu til þess.
     

Beiðni um aðgang upplýsinga
Öllum beiðnum um aðgengi að eigin persónuupplýsingum, krafa um leiðréttingu eða eyðingu persónugreinanlegra upplýsinga skal beint á netfangið: bjartlif@isi.is

Bjartlif.is mun staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregast við beiðnum innan 5 virkra daga frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan sama tíma. Beiðandi skal geta sannað á sér deili áður en orðið er við óskinni.

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot
Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er bjartlif.is mikilvægt og hefur hún gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu hennar um öryggi. Komi upp grunur um öryggisbrot mun bjartlif.is grípa til viðeigandi ráðstafana í því skyni í að stöðva öryggisbrot sem fyrst og lágmarka tjónið sem mest. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegra tafa. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi.

Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar
Persónuverndarstefna bjartlif.is er reglulega endurskoðuð til að tryggja að ströngustu kröfum sé ávallt fylgt. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér vinnurögð bjartlif.is þegar kemur að persónuvernd og hafa samband ef einhverjar spurningar vakna á netfangið: bjartlif@isi.is

Persónuverndarstefna bjartlif.is er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til.
Síðast var stefnan uppfærð 17. ágúst 2022

bottom of page